18.02.1987
Neðri deild: 44. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3224 í B-deild Alþingistíðinda. (2916)

336. mál, deilur menntamálaráðuneytisins og fræðsluyfirvalda í Norðurlandsumdæmi eystra

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Virðulegi forseti. Með tilvísun til þess að mál þetta er orðið að dómsmáli tel ég í hæsta máta óeðlilegt að Alþingi ákveði að Hæstiréttur skipi rannsóknarnefnd í málið. Reyndar leyfi ég mér að efast mjög um að málið hefði verið lagt fram af svo þingreyndum manni sem 1. flm. ef svo hefði verið orðið fyrr. Ég segi því já við frávísunartillögunni.