23.02.1987
Neðri deild: 47. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3338 í B-deild Alþingistíðinda. (3024)
232. mál, Landkaupasjóður kaupstaða og kauptúna
Félagsmálaráðherra (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um niðurfellingu laga nr. 54 frá 29. maí 1981, um Landkaupasjóð vegna kaupstaða og kauptúna. Frv. þetta hefur verið til meðferðar í hv. Ed. og hefur Ed. samþykkt frv. óbreytt eins og það liggur hér fyrir.
1. gr. frv. fjallar um að lög nr. 54 frá 21. maí 1981 um Landkaupasjóð vegna kaupstaða og kauptúna falli úr gildi. Jafnframt skal Lánasjóður sveitarfélaga skv. lögum nr. 35 frá 29. apríl 1966 yfirtaka eignir og skuldir Landkaupasjóðs og það hlutverk sem sá sjóður hafði samkvæmt lögum nr. 54/1981.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar árið 1988, eins og stendur í 2. gr.
Ég vil aðeins koma inn á örstutt hér í sambandi við grg. frv. sem ég vísa örlítið til.
Þar eð ríkissjóður hefur frá og með árinu 1981 hætt að leggja Landkaupasjóði til fjármagn, ráðstöfunarfé sjóðsins hefur farið minnkandi og starfandi er sjóður sem hefur það meginhlutverk að veita sveitarfélögum lán til langs tíma sýnist með öllu ástæðulaust að reka Landkaupasjóð áfram sem sjálfstæða stofnun til frambúðar, heldur er lagt til að sameina hann Lánasjóði sveitarfélaga sem í tvo áratugi hefur séð um starfsemi Landkaupasjóðsins. Er því í frv. þessu lagt til að lög nr. 54 frá 21. maí 1981, um Landkaupasjóð kaupstaða og kauptúna, verði felld úr gildi og Lánasjóður sveitarfélaga yfirtaki hlutverk hans og eignir.
Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum 24. október 1986 að höfðu samráði við stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga að beina þeim tilmælum til félmrh. að Landkaupasjóður ríkisins skv. lögum nr. 54/1981 yrði sameinaður Lánasjóði sveitarfélaga. Ég ákvað því að fara að óskum sambandsins í þessu máli og þess vegna er þetta frv. flutt á þskj. 249, enda ekki ástæða til að hafa tvö kerfi eins og hefur verið undanfarið.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa lengra mál um þetta. Hér er um lítið mál að ræða en þó mikilvægt að þessi breyting nái fram að ganga og ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og félmn.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.