24.02.1987
Sameinað þing: 54. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3342 í B-deild Alþingistíðinda. (3031)
349. mál, dýralæknisembætti
Fyrirspyrjandi (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að spyrja hæstv. landbrh. nokkurra spurninga varðandi veitingu embætta héraðsdýralækna í landinu. Ástæðan fyrir þeim fsp. eru nokkrar endurteknar veitingar þar sem svonefnd starfsaldursregla Dýralæknafélags Íslands hefur verið sniðgengin við röðun umsækjenda og gengið fram hjá þeim mönnum, jafnvel nokkrum, sem haft hafa flesta punkta eða verið efstir í forgangsröðun samkvæmt svonefndri starfsaldursreglu. Starfsaldursregla Dýralæknafélagsins er regla sem þetta félag hefur sett sér og á að þjóna þeim tilgangi fyrst og fremst að tryggja dýralæknaþjónustu í afskekktum og tekjurýrum héruðum með því að umbuna í nokkru þeim mönnum sem þar gegna störfum og styrkja stöðu þeirra til embættaveitinga í feitari héruðum þegar síðar verður. Reglan samanstendur af eftirfarandi þáttum:
1. Raða skal eftir starfsaldri, þar með talið framhaldsnám að loknu embættisprófi.
2. Hvert ár að loknu embættisprófi í starfi skal telja einn punkt.
3. Hvert ár í uppbótarhéraði samkvæmt kjarasamningi, þau héruð eru nú Þórshöfn, Breiðdalsvík, Hólmavík, Ísafjörður og Barðaströnd, telur að auki 1/3 punkt.
4. Í starfi erlendis eru fyrstu tvö árin óskert, þriðja árið og síðari ár teljast 0,66 punktar hvert.
Þessi regla, sem félagið hefur sett sér og samstaða er um í Dýralæknafélagi Íslands, á sem sagt að þjóna eins og ég áður sagði þeim tilgangi að tryggja afskekktum og tekjurýrum héruðum þjónustu. Dýralæknar óttast mjög að ef hofið verður alveg frá því að hafa hliðsjón af þessari reglu, eins og stöðuveitingar upp á síðkastið gætu bent til, verði hag þessara héraða stofnað í hættu hvað þessa þjónustu snertir. Því hef ég leyft mér að spyrja hæstv. landbrh. eftirfarandi spurninga:
„1. Eftir hvaða reglum velur landbrh. úr hópi umsækjenda um embætti héraðsdýralækna?
2. Hverju sætir að svonefnd starfsaldursregla Dýralæknafélags Íslands hefur margsinnis verið sniðgengin við veitingu embættis héraðsdýralæknis?
3. Hyggst ráðherra grípa til annarra aðgerða til að tryggja afskekktum og tekjurýrum héruðum dýralæknisþjónustu ef fallið verður frá því að hafa hliðsjón af starfsaldursreglu Dýralæknafélagsins?