04.03.1987
Neðri deild: 51. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3724 í B-deild Alþingistíðinda. (3334)
18. mál, kosningar til Alþingis
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það er óþarfi að flytja langa ræðu um það mál sem hér er til umræðu, bæði vegna þess að málið er kunnugt öllum hv. þm. og eins er hér um 7. umr. að ræða því að málið kemur eftir að breytingar hafa verið gerðar á því í hv. Ed. sem hæstv. ráðh. hefur þegar gert grein fyrir.
Það er ljóst að hér eru á ferðinni að áliti margra nokkuð flókin lög, aðallega vegna þess að markmiðin sem menn settu sér í upphafi voru ósamrýmanleg. Nefndin sem vann að því að kynna sér fyrirliggjandi brtt. og gera breytingar á gildandi lögum ákvað að fara í meginatriðum eftir því samkomulagi sem gert var í upphafi eða fyrir síðustu alþingiskosningar, en það samkomulag gerðu formenn stjórnmálaflokkanna.
Það er ljóst að núgildandi lög leiða því miður til fjölgunar framboða, svokallaðra smáframboða. Ég tel að sú þróun sé ekki góð og í raun og veru hafi íslenska þjóðin varla efni á því að fjölga stjórnmálaflokkum úr hófi fram eins og gerst hefur í sumum okkar nágrannalanda.
Ég tel ástæðu til þess, herra forseti, að flytja sérstakar þakkir til Þorkels Helgasonar og Helga Bernódussonar fyrir þeirra þátt í því að liðka til fyrir nefndarstarfinu. Jafnframt má minna á að nokkrir aðrir kynntu sér málið rækilega og sendu nefndinni sínar hugmyndir sem voru til athugunar þar og til bóta fyrir nefndarstarfið. Vil ég þá sérstaklega nefna Jón Ragnar Stefánsson.
Það er ljóst að ef Sjálfstfl. hefði einn fengið að móta þessa löggjöf hefði verið byggt á reglu d'Hondts. Það kom fram í nál. á síðasta þingi. Sama geta fulltrúar annarra stjórnmálaflokka sagt, að ef þeir einir hefðu fengið að ráða hefði niðurstaðan ekki orðið með þeim hætti sem hér hefur orðið á. En hér er um samkomulagsmál að ræða og þetta er niðurstaðan og við hana verðum við að sætta okkur.
Ég tel, herra forseti, ástæðu til að taka það fram að nefndin hefur ekki komið saman til að ræða þær breytingar sem gerðar voru í Ed., en ég hef kynnt nefndarmönnum breytingarnar skriflega og óskað eftir því að þeir hefðu samband við mig fyrir þennan þingfund ef þeir hefðu athugasemdir að gera. Þær athugasemdir hafa ekki komið fram. Þess vegna tel ég ástæðu til að lýsa því yfir fyrir hönd nefndarinnar að hún fellir sig við þær breytingar sem gerðar voru í hv. Ed. og mælir með því að frv. verði samþykkt svo breytt.