04.03.1987
Neðri deild: 51. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3725 í B-deild Alþingistíðinda. (3339)
18. mál, kosningar til Alþingis
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Hér er umdeilt mál á ferðinni. Þó að samkomulag hafi tekist að nafninu til milli flokka með undantekningum þó um afgreiðslu málsins hafa einstakir þm. ekki bundið hendur sínar í því samkomulagi. Ég tel að við meðferð þessa máls hafi viss atriði verið færð til skárri vegar í sambandi við kosningalögin frá því sem þau voru afgreidd 1984 síðast í þinginu. En hér eru þó ýmis atriði sem ég felli mig ekki við og langt frá því. Eitt atriði var flutt inn í þingið í sambandi við kjördag. Þegar það mál var rætt hér í þinginu gerði ég athugasemdir við þá ákvörðun sem kom frá ríkisstjórn og forsrh. að hans tillögu. Það er eitt af mörgu sem gengur gegn hagsmunum landsbyggðarinnar í sambandi við afgreiðslu þessa máls og er að mínu mati fráleitt að vera að festa nú annað sinn í lög að efna til alþingiskosninga á meðan allra veðra er von í landinu. Ég greiði ekki atkvæði í þessu máli, sit hjá.
Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 736)