04.03.1987
Neðri deild: 52. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3750 í B-deild Alþingistíðinda. (3360)

360. mál, skipan gjaldeyris- og viðskiptamála

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. er um breytingu á lögum nr. 63 frá 1979, um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála, ásamt síðari breytingum. Þetta er flutt í tengslum við frv. til tollalaga sem ríkisstjórnin lagði fram um síðustu áramót. Eitt af þeim markmiðum sem stefnt er að með tollalagafrv. er að einfalda og greiða fyrir tollmeðferð á innfluttum sem útfluttum vörum til hagsbóta jafnt fyrir tollyfirvöld og innflytjendur sem og endanlega notendur innfluttra vara. Liður í heildarendurskipulagningu tollmeðferðar á vörum er upptaka almenns greiðslufrests á aðflutningsgjöldum samfara heimild til beins flutnings á vörum frá farmflytjendum til innflytjenda. Það er gert ráð fyrir að afhending beint frá farmflytjanda fari fram gegn framvísun farmskírteinisins og að lokinni lágmarksskráningu vörusendingar hjá farmflytjanda en afhending aðflutningsskýrslu, vörureiknings og annarra tollskjala fari fram innan ákveðins frests, talið frá skráningu vörusendingar.

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 63 frá 1979, um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála, er óheimilt að tollafgreiða vörur nema staðfesting gjaldeyrisbanka liggi fyrir um að greiðsla hafi verið innt af hendi eða greiðsla tryggð með lántöku. Ákvæði þetta fær ekki samrýmst þeirri kerfisbreytingu sem hér að framan er vikið að því að tollyfirvöldum er talið óheimilt að taka við greiðslu aðflutningsgjalds án þess að fyrir liggi að innflytjandi hafi áður greitt viðkomandi kröfu í banka eða tryggt greiðslu hennar.

Samkvæmt þessu frv. er lagt til að ákvæði þar að lútandi í 2. og 3. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna falli brott. Með tilliti til þeirrar stefnu íslenskra stjórnvalda að auka frelsi í viðskiptum og jafnframt í ljósi þeirrar þróunar, er átt hefur sér stað á þessu sviði, er eðlilegt framhald að reglur varðandi tollmeðferð verði einfaldaðar og sú lagabreyting, sem ég mæli hér fyrir, er mikilvægur liður í þeirri einföldun.

Herra forseti. Ég tel ekki þörf á að hafa fleiri orð um þetta lagafrv. og legg til að að lokinni þessari umræðu verði því vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.