09.03.1987
Efri deild: 51. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3826 í B-deild Alþingistíðinda. (3442)

341. mál, gildistaka staðgreiðslu opinberra gjalda

Stefán Benediktsson:

Frú forseti. Þar sem hér er verið að ívilna þeim sem skammta sér sjálfir laun með algerlega órökstuddum hætti umfram venjulega launamenn segi ég já.