09.03.1987
Neðri deild: 57. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3854 í B-deild Alþingistíðinda. (3500)
196. mál, tollalög
Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Eins og fram kom í máli hv. 3. þm. Reykv. hefur ríkisstjórnin tekið ákvörðun um að færa þá styrki til öryrkja sem áður komu fram í tollaeftirgjöf yfir til Tryggingastofnunar ríkisins þar sem um yrði að ræða beina fjárstyrki. Það er við það miðað að forskot öryrkja gagnvart almennum bifreiðakaupum verði það sama og áður var, þ.e. fyrir hina almennu og miklu lækkun á bifreiðatollum sem áttu sér stað í ársbyrjun á síðasta ári. Fjmrn. hefur sent heilbr.- og trmrn. bréf um þetta efni svo sem fram kom í umræðum á hinu háa Alþingi varðandi fsp. hv. 2. þm. Austurl. Ég geri ráð fyrir að í því ráðuneyti sé þetta mál nú í undirbúningi og þess sé ekki langt að bíða að endanlegar tillögur komi fram um þetta efni.
Það var sérstaklega óskað eftir því að fulltrúar Landssambands fatlaðra hefðu aðstöðu til að fylgjast með tillögugerð í þessu efni og hafa umsagnarrétt þar um á vinnslustigi þeirra.
Annað er ekki um þetta mál að segja á þessu stigi, herra forseti.