11.03.1987
Sameinað þing: 61. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3963 í B-deild Alþingistíðinda. (3605)

Skýrsla um utanríkismál

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég efast ekki um góðan vilja forseta til að beita sanngirni, en ég hefði kunnað því betur að þetta hefði komið fram á fundinum sem forseti vitnaði til áðan, á fundinum sem ég sat fyrir hönd þingflokks Kvennalistans. Þá hefðu fulltrúar þingflokkanna getað samstillt sitt mál við klukkuna.