11.03.1987
Neðri deild: 62. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3985 í B-deild Alþingistíðinda. (3656)

316. mál, flugmálaáætlun

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Það eru orðin æðimörg ár síðan ég eitt sinn flutti hér á þingi till. um öryggismál flugvalla. Það eru líklega 20-30 ár. Síðan hefur ýmislegt gerst. En ég vil nota tækifærið og fagna því að hér hefur verið lagt fram á Alþingi frv. til laga um flugmálaáætlun og fjáröflun til framkvæmda í flugmálum og enda þótt ég hafi ekki haft tækifæri til að skoða þetta mál mjög ítarlega fagna ég því að þessi áætlun og þetta mál eru nú fram komin og lýsi því yfir að ég veiti því minn stuðning.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað