13.03.1987
Efri deild: 61. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4124 í B-deild Alþingistíðinda. (3736)
Tilhögun þingfunda
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Vegna athugasemda hv. 5. landsk. þm. skal upplýst að það er í samráði við starfsfólk þingsins að þessi tilhögun hefur verið ákveðin um fundarhöld í dag, þ.e. að það verði gert hlé á fundum kl. 18.00, að vísu eru tíu mínútur enn til stefnu, og að starfsfólkið hafi hlé til að sinna störfum þangað til kl. 21.00 í kvöld. Þetta er einmitt gert með tilliti til starfsfólksins. Að vísu er það rétt, sem kom fram hjá hv. 5. landsk. þm., að hér hafa verið tveir kvöldfundir í þessari viku, á miðvikudagskvöldi og svo aftur í gærkvöldi, en eins og kunnugt er voru fundarhöld í gær aðeins að kvöldinu en ekki í eftirmiðdaginn. Væntir forseti þess að hv. þingdeildarmenn geti sætt sig við þessa tilhögun sem hefur verið ákveðin með tilliti til þess að verið er að reyna að greiða fyrir þingstörfum til þess að hægt verði að ljúka þeim á fimmtudag í næstu viku eins og stefnt er að.