16.03.1987
Neðri deild: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4250 í B-deild Alþingistíðinda. (3926)

308. mál, jarðræktarlög

Forseti (Ingvar Gíslason):

Það væri nú æskilegt ef hv. landbn. vildi koma saman formlega núna á meðan á þessum fundi stendur, það þarf ekki að vera langt, og við tökum þetta mál þá fyrir aðeins síðar. Það væri ágætt að geta lokið málinu, en málinu er frestað um sinn.

Umræðu frestað.