16.03.1987
Neðri deild: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4281 í B-deild Alþingistíðinda. (3992)
340. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda
Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég verð að segja að þetta er nokkuð sérkennilegt mál allt. Þannig er að á föstudaginn var var gert ráð fyrir að Alþýðusamband Íslands fengi í hendur útreikninga Þjóðhagsstofnunar á því hvernig skattkerfisbreytingin hitti mismunandi tekjuhópa. Það tókst hins vegar ekki þann dag að ná þessum upplýsingum í hús og var sagt að þær kæmu á mánudag. Síðan hef ég af því fregnir seinni partinn í dag að þetta sé tilbúið og ræddi það mál hér úr ræðustól og við hæstv. fjmrh. sem hafði þá ekki fengið gögnin í hendur. Ég óskaði þá eftir því seinni partinn í dag að atkvæðagreiðslu um það mál sem hér er á dagskrá yrði frestað vegna þess að upplýsingar væru væntanlegar. Það voru ekki mín orð þá né heldur eru það nú að þessar upplýsingar væru með þeim hætti að þær hlytu að hafa áhrif á afgreiðslu málsins heldur taldi ég og tel að það sé nauðsynlegt að upplýsingar komi hingað inn jafnharðan og þær liggja fyrir.
Ég gerði tilraun til þess sjálfur að hafa samband við forstjóra Þjóðhagsstofnunar og aðstoðarforstjóra Þjóðhagsstofnunar seinni partinn í dag. Þeir voru fjarri sínum vinnustað frá því kl. rúmlega þrjú í dag. Ég gerði þá tilraun til að ná þeim heima hjá þeim milli kl. 7 og 8 í kvöld og heyrði í forstjóra Þjóðhagsstofnunar kl. 7.30. Þá skýrði hann mér frá því að þær upplýsingar sem ég var að leita eftir lægju fyrir, þær væru tilbúnar. Honum hefði hins vegar ekki unnist tími til að koma þeim niður í fjmrn. Hann mundi sjá til þess að þessar upplýsingar væru hér þegar fundur byrjaði aftur um kl. 9. Síðan kemur hæstv. fjmrh. og segir upp úr kl. 9: Þessar upplýsingar eru ekki tilbúnar samkvæmt orðum forstjóra Þjóðhagsstofnunar fimm mínútum fyrir níu.
Þetta er satt að segja afar sérkennilegt. Spurningin er sú: Er verið að fela hér einhverja hluti? Þetta er afar tortryggilegt, verð ég að segja. Ég tel nokkurn veginn víst að þessar upplýsingar séu tilbúnar, a.m.k. í meginatriðum. Það sé kannske eftir að fara yfir einhverja texta, en töflurnar séu tilbúnar. En þetta vilja menn ekki koma með greinilega. Það er afar tortryggilegt, verð ég að segja. Það er afar skrýtið. Og það er afar sérkennilegt þegar þess er gætt að stjórn og stjórnarandstaða hafa í þinginu sameinast um það að reyna að greiða fyrir því að þessi mál fái sem hraðasta meðferð, þegar liggur fyrir að það er samkomulag um tvö af þremur þessara frv. eða fjórum má segja, þegar það liggur fyrir að stjórn og stjórnarandstaða og þm. í fjh.- og viðskn. þessarar deildar og í þessari hv. deild hafa lagt sig fram um að þoka málum fram. Menn hafa ekki verið með málæði eða löng ræðuhöld út af þessu. Þegar það liggur fyrir er ekki hægt að draga þessa pappíra út úr Þjóðhagsstofnun. Hvar er yfirmaður Þjóðhagsstofnunar? Er það ekki hæstv. forsrh.? Ég óska eftir því að hann verði kallaður út. Ég óska eftir því að hann sjái til þess að þau gögn sem þarna liggja fyrir samkvæmt orðum forstjóra Þjóðhagsstofnunar verði lögð hér fram. Þau verði lögð fram á þessum kvöldfundi áður en málin fara út úr þessari deild. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að það væri nokkuð sérkennileg stofnun, þessi Þjóðhagsstofnun. Ég staðfestist satt að segja heldur í þeirri trú minni og skoðun við þá atburði sem hafa orðið á þessu kvöldi.
Þjóðhagsstofnun er ekki bara vinnustofnun fyrir ríkisstjórnina. Hún er ráðgjafarstofnun fyrir Alþingi líka. Og ég kann því ekki ef ráðherrar eru að stöðva mál á leiðinni frá Þjóðhagsstofnun til Alþingis. Það eru mörg mál á dagskrá í kvöld og verulegur kostur á því að taka þau til rækilegrar umræðu og ég skora á hæstv. fjmrh. og hæstv. forsrh. að tryggja að þessar upplýsingar verði lagðar á borðið núna í kvöld. Það er væntanlega til ljósritari í þessari „sjoppu“ sem heitir Þjóðhagsstofnun. Það ætti að vera hægt að fjölga nokkrum eintökum af þessari speki þannig að menn fengju þetta. Eða hvað? Eru menn að fela eitthvað?
Hvað á þetta að þýða?
Ég tel enga ástæðu til þess, herra forseti, ef menn geta ekki komið upplýsingum á framfæri hér með eðlilegum hætti að Alþingi sé í einhverjum færibandastellingum fyrir þessa ríkisstjórn.