17.03.1987
Efri deild: 70. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4422 í B-deild Alþingistíðinda. (4194)

119. mál, umferðarlög

Jón Kristjánsson:

Virðulegi forseti. Þar sem Nd. hefur gert mjög miklar breytingar á umferðarlögum og allshn. Ed. þarf að fá ráðrúm til þess að skoða þær breytingar og meta, þá vil ég óska þess við hæstv. forseta að umræðu um umferðarlög verði frestað til morguns þar sem nefndin hefur ekki enn þá haft nægan tíma til þess að kryfja þessi mál til mergjar.

Umræðu frestað.