17.03.1987
Neðri deild: 67. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4458 í B-deild Alþingistíðinda. (4235)
341. mál, gildistaka staðgreiðslu opinberra gjalda
Frsm. allshn. (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 1005, um frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar, sem komið er frá allshn. Nefndin hefur athugað frv. og leggur til að það verði samþykkt eins og það kom frá Ed. með þeim breytingum sem flutt er till. um á sérstöku þskj. Undir þetta rita auk mín Guðrún Helgadóttir, Ólafur Þ. Þórðarson, Friðjón Þórðarson, Jóhanna Sigurðardóttir, Pálmi Jónsson og Stefán Guðmundsson.
Brtt. nefndarinnar er á þskj. 1006 og þar er um það að ræða að við bætist tillaga um að ríkisborgararéttur verði veittur átta útlendingum sem greindir eru á því þskj. sem ég nefndi.