18.03.1987
Sameinað þing: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4483 í B-deild Alþingistíðinda. (4322)

305. mál, Þjóðhagsstofnun

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Með hliðsjón af því, sem ég sagði áðan í umræðunni, að till. þessi með þeirri breytingu sem verið er að greiða atkvæði um hefur öll þau sömu áhrif og frumtillagan, í henni var talað um að Þjóðhagsstofnun yrði lögð niður en í þessari að fela öðrum verkefni hennar, og þar sem þetta kemur út á eitt segi ég auðvitað já.