18.03.1987
Neðri deild: 69. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4522 í B-deild Alþingistíðinda. (4396)

Afgreiðsla frumvarps um almannatryggingar

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Það er greinilegt að annir þingsins gera það nú að verkum að sambandsleysi hefur komið upp milli mín og formanns míns. Ég vil bara upplýsa það að þessi fundur hefur verið boðaður og verður kl. 11 í fyrramálið og ég treysti því, samkvæmt orðum formanns hv. nefndar sem ekki er staddur hér, að hann muni afgreiða þetta mál. Ég vil upplýsa það hér.