04.11.1986
Sameinað þing: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í B-deild Alþingistíðinda. (444)

97. mál, öryggisfræðsla sjómanna

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Fjárveitingavaldið er í höndum Alþingis og á því eiga sæti eins og menn vita 60 þm. og ég er einn af þeim. Ég er þeirrar skoðunar að það eigi að veita þetta fjármagn að fullu og öllu.