19.03.1987
Efri deild: 74. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4564 í B-deild Alþingistíðinda. (4464)

213. mál, fólksflutningar með langferðabifreiðum

Egill Jónsson:

Virðulegi forseti. Eins og fram kemur í nál. meiri hl. samgn. Nd. Alþingis sá Nd. sér ekki fært að fallast á afgreiðslu deildarinnar á frv. til laga um skipulag á fólksflutningum. Óformlega hafa samgöngunefndarmenn fjallað um þessa breytingu, a.m.k. flestir hverjir, og tóku reyndar þátt í þessari umfjöllun óformlega í gær þannig að við mælum með því að frv. verði samþ. eins og það kemur nú frá Nd.