06.11.1986
Sameinað þing: 13. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 666 í B-deild Alþingistíðinda. (535)

17. mál, lífeyrissjóður allra landsmanna

Forseti (Helgi Seljan):

Út af orðum hv. síðasta ræðumanns vil ég taka fram að hv. 3. þm. Reykn. Kjartan Jóhannsson hefur þegar talað þrisvar og á þess vegna ekki kost á því að taka þátt í þessari umræðu, nema ef hv. þm. sér ástæðu til að bera af sér vissar sakir.