11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í B-deild Alþingistíðinda. (614)

59. mál, húsnæðissparnaðarreikningar

Félagsmálaráðherra (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Hv. fyrirspyrjandi virðist ekki alveg taka eftir því sem hér fer fram í hita málsins. Ég tók skýrt fram áðan að málinu er ekki lokið milli ráðuneytanna. Félmrn. hefur sent hæstv. fjmrh. túlkun sína á þessum lögum og við bíðum eftir því að þeim umræðum, sem eru í gangi milli ráðuneytanna, verði lokið og þá liggur fyrir endanleg afstaða í málinu.