12.11.1986
Neðri deild: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í B-deild Alþingistíðinda. (686)

Skýrsla um viðskipti Útvegsbankans og Hafskips hf.

Forseti (Ingvar Gíslason):

Hvað varðar forseta Nd., þá er því til að svara að hann hefur ekki komið neitt nálægt þessu máli, og ef hann talar um sjálfan sig sem persónu, sem á sæti í sameinuðu þingi, stóð þannig á að hann var ekki á þingfundi í gær, hafði leyfi forseta sameinaðs þings til að vera fjarverandi og hafði ekki spurnir af þessari skýrslu fyrr en hann hlustaði á fréttir í gærkvöld. Forseti Nd. hefur ekkert um þetta mál að segja, en vill að þessu gefna tilefni hins vegar heita hv. 5. þm. Reykv. því að þetta mál verður tekið fyrir á fundum þingforseta svo fljótt sem við verður komið. Að öðru leyti hefur forseti Nd. ekkert um þetta mál að segja.