12.11.1986
Neðri deild: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (699)

Skýrsla um viðskipti Útvegsbankans og Hafskips hf.

Forseti (Ingvar Gíslason):

Þá er þessum umræðum um þingsköp lokið, en ég vil, vegna þess að fram hafa komið tilmæli til forseta varðandi það að þetta mál verði tekið til umræðu mjög fljótlega, jafnvel á morgun, hér í þinginu, svara því til að ég skal koma þessum tilmælum á framfæri við aðra þingforseta og finna leið til þess að fundur verði haldinn á morgun um þetta efni eða hvort síðar yrði.