12.11.1986
Neðri deild: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 820 í B-deild Alþingistíðinda. (704)
137. mál, verðlag, samkeppnishömlur og órettmætir viðskiptahættir
Flm. (Steingrímur J. Sigfússon):
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. 2. þm. Norðurl. e. fróðlegt innlegg í umræðurnar, ekki síst hvað viðkom verðlagssamanburði þar sem vitnað var í nýja verðkönnun Verðlagsstofnunar. Ég ætla ekki að hætta mér út í miklar umræður um ágæti samvinnuverslunar, hvort sem hún er á Melrakkasléttu eða einhvers staðar annars staðar, í samanburði við annað verslunarform. Ég lít svo á að það þingmál, sem hér er til meðferðar, sé algerlega óháð slíkum hlutum. Ég tel enn fremur að vangaveltur um áhrif þessara reglna séu ekki í eðli sínu skyldar því hvort samkeppni er meiri eða minni í verslun heldur væri hér um að ræða upplýsingamiðlun til viðskiptavina verslananna. Mín viðmiðun er sú að slíkt sé ætíð af hinu góða. Ég hef ekki sömu áhyggjur og hv. 2. þm. Norðurl. e. um að þetta mundi leiða til þess að kaupmenn hefðu vaðið fyrir neðan sig og hækkuðu vörurnar meira í hvert sinn eða í upphafi, eins og mér fannst mega skilja á orðum hans. Ég hlýt þá að spyrja hv. þm. á móti hvort hann haldi ekki að a.m.k. á þeim svæðum þar sem hin svokallaða „frjálsa“ samkeppni ríkir í verslun mundi hún sjálfkrafa sjá fyrir því að kaupmenn nýttu sér ekki þá möguleika sem í slíku kynnu að felast.
Ég vil benda á að útfærsla þessara reglna mundi ráða miklu um hvernig þær yrðu í framkvæmd. Hér er fyrst og fremst verið að leggja til að sett verði í lög stoð til að setja slíkar reglur sem síðan yrðu nánar útfærðar í reglugerð. Það er þannig með þessar reglur eins og allar aðrar verðlagsreglur að þeim er erfitt að framfylgja. Það er mjög erfitt, vegna þess hvers eðlis smásöluverslun er einkum og sér í lagi, að fylgjast með því í smáatriðum að slíkum reglum sé framfylgt. Við höfum átt um það ótal dæmi í dag.
Hér mundi eiga við alveg það sama og annars staðar að besta eftirlitið væri að almenningur sjálfur fylgdist með því að þessum reglum væri framfylgt, þ.e. ef almenningur lærði að nýta sér slíkar upplýsingar, sem ég er sannfærður um að hann mundi gera, kæmi besta aðhaldið með því að þessum reglum væri framfylgt frá viðskiptavinum verslunarinnar.