13.11.1986
Sameinað þing: 16. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í B-deild Alþingistíðinda. (743)

144. mál, viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég get ekki sagt að það séu mál á svipuðu stigi og Hafskipsmálið. Hins vegar eru til fyrirtæki sem standa mjög höllum fæti í bankakerfinu og sem unnið er að rannsókn á. Ég get ekki á þessu stigi fullyrt um hvort um gjaldþrot sé þar að ræða eða ekki.