17.11.1986
Efri deild: 12. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 885 í B-deild Alþingistíðinda. (744)

Vigfús Jónsson bóndi fyrir BD 5 NE

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Borist hefur eftirfarandi bréf til forseta Ed., dags. 10. nóv. 1986:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindagerðum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að fyrsti varamaður Sjálfstfl. í Norðurlandskjördæmi eystra, Vigfús Jónsson bóndi, taki sæti á Alþingi í minn stað frá og með 17. nóv. n.k. að telja.

Björn Dagbjartsson,

5. þm. Norðurl. e.“

Vigfús Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi. Kjörbréf hans hefur því verið rannsakað og er hann boðinn velkominn til starfa.