17.11.1986
Efri deild: 12. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (756)

103. mál, tékkar

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Þetta frv. er um breytingu á lögum nr. 94 frá 19. júní 1933, um tékka, sem ég mæli fyrir, og það er lagt fram hér á hv. Alþingi í samræmi við það fyrirheit sem gefið var við setningu laganna um sparisjóði. Í XII. kafla þeirra laga er að finna ákvæði sem heimilar Sambandi ísl. sparisjóða að gangast fyrir stofnun Lánastofnunar sparisjóða, en hún var stofnuð 19. sept. á þessu hausti. Hlutverk þessarar lánastofnunar er að annast sameiginlega í þágu sparisjóðanna hagsmuni og er lánastofnun því heimilt að annast þau verkefni sem sparisjóðum eru falin utan innláns- og útlánsviðskipta við almenning. Til þess að lánastofnun geti gegnt því hlutverki er henni er ætlað að hafa samkvæmt lögunum um sparisjóði er brýnt að stofnunin fái heimild til að gefa út tékka eins og lagt er til með þessu frv.

Ég tel ekki þörf á að fylgja frv. úr hlaði með fleiri orðum, en vil ítreka að grundvöllur þessara lagabreytinga er í raun lagður með setningu laganna um sparisjóði. Þetta frv. fór greiðlega í gegnum Nd. og var samstaða um afgreiðslu málsins.

Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og til fjh.- og viðskn.