25.11.1986
Sameinað þing: 20. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1112 í B-deild Alþingistíðinda. (949)

149. mál, Þróunarsamvinnustofnun Íslands

Utanríkisráðherra (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég vil aðeins láta það koma hér fram að af hálfu utanrrn. hefur verið ritað til fjvn., sem nú fjallar um fjárlagafrv., og vakin athygli á þeim tillögum sem í fjárlagafrv. eru og undirstrikuð nauðsyn þess að þar verði bætt úr. Þetta vildi ég að hér kæmi fram þannig að þm. vissu að af hálfu utanrrn. væri gert það sem í þess valdi stæði. Næst er það Alþingis að fjalla um fjárlagafrv. Þaðan kemur niðurstaðan og eftir henni verður að sjálfsögðu farið.