03.12.1987
Sameinað þing: 25. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1448 í B-deild Alþingistíðinda. (1038)

151. mál, afplánunarmál

Ingi Björn Albertsson:

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. hans svör sem flest boða betri tíð í þessum málum. Ég vil gera örstutta athugasemd við þær rannsóknir sem hafa farið fram á neyslu vímuefna innan fangelsismúranna vegna þess að upplýsingar ráðherra stangast algerlega á við það, sem kemur frá fyrrv. föngum og fangavörðum jafnvel, að þarna sé við mikið vandamál að stríða. Ég tel að ef þetta eru þær upplýsingar sem ráðherra hefur í dag sé brýnt mál að það verði gerð heildarúttekt á þessum málum á ný og gripið þá til ráðstafana í framhaldi af því.