03.12.1987
Sameinað þing: 26. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1475 í B-deild Alþingistíðinda. (1069)
147. mál, skoðanakannanir
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég þakka hv. 4. þm. Norðurl. e. fyrir þá röggsemi að hafa endurvakið þetta mál á hinu háa Alþingi, hvort ekki sé nauðsynlegt að setja lög eða reglur um skoðanakannanir, og leyfa mér að vera meðflm. að till. Við hv. 14. þm. Reykv. fluttum till. til þál., sem gekk í sömu átt, á síðasta Alþingi og var vísað til nefndar í nóvembermánuði, en vegna annríkis í nefndinni vannst ekki tími til að athuga till. nægilega vel áður en þingi lauk til þess að hægt væri að afgreiða hana í þinginu. En ég vænti þess að sú mikla vinna sem þá var unnin muni auðvelda störf nefndarinnar nú svo að þess sé að vænta að málið geti fengið þinglega meðferð.