07.12.1987
Sameinað þing: 27. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1492 í B-deild Alþingistíðinda. (1090)

111. mál, mælingar á geislavirkni í sjávarafurðum og umhverfi

Flm. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að þakka fyrir undirtektir við þessa tillögu og vonast til þess að við stöndum þá ekki andspænis því aftur að það gleymist í fjárlagafrv. að gera ráð fyrir þeim einfalda búnaði sem þarf til þess að geta notfært okkur aðstoð, jafnmikilvæga og þá sem þessi till. fjallar um.