07.12.1987
Neðri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1556 í B-deild Alþingistíðinda. (1119)
40. mál, Útflutningsráð Íslands
Steingrímur J. Sigfússon:
Virðulegur forseti. Þar sem senn er nú kominn hefðbundinn fundartími þingflokka legg ég til að þessum fundi verði slitið. Úr því að hv. stjórnarliðar mæta ekki betur í salinn en raun ber vitni þannig að hér getur ekki farið fram atkvæðagreiðsla með eðlilegum hætti vegna fjarvistar þeirra tel ég tímabært að slíta þessum fundi, enda fundartími þegar liðinn eða því sem næst og meira verður ekki að gert.