08.12.1987
Neðri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1610 í B-deild Alþingistíðinda. (1160)

40. mál, Útflutningsráð Íslands

Forseti (Jón Kristjánsson):

Ég vil geta þess að ég ber að sjálfsögðu mjög mikið traust til hv. 3. þm. Reykn. Ég gat um hans nærveru hér til skýringar því að utanrrh. verður ekki hér við þessa viku. Mér er fullljóst að hann gegnir ekki þeim skyldum. (Gripið fram í.) Og aðrir ráðherrar, þar á meðal viðskrh. og forsrh., hafa verið viðstaddir þessa umræðu. Og ég ítreka það sem ég sagði um að málið er enn þá í fyrri deild.