09.12.1987
Efri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1673 í B-deild Alþingistíðinda. (1206)

54. mál, útflutningsleyfi

Guðrún Agnarsdóttir:

Hæstv. forseti. Afstaða mín til meginefnis þessa máls eins og þess sem hér á undan var rætt hefur þegar komið fram í umræðum um Útflutningsráð Íslands og ég mun ekki endurtaka hana hér. Það hefur líka komið í ljós að skoðanir útflutningsfyrirtækja og viðskiptaaðila eru mjög skiptar um réttmæti þessara breytinga. Ég vil gjarnan fá að hlusta á þær í nefnd þegar málið verður rætt þar og fer því fram á að fá áheyrnaraðild að hv. fjh.- og viðskn. þegar þetta mál verður rætt í nefndinni.