10.12.1987
Sameinað þing: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1741 í B-deild Alþingistíðinda. (1269)
145. mál, ólöglegur innflutningur myndbanda
Guðmundur Ágústsson:
Hæstv. forseti. Ég fagna þessari fsp. og sérstaklega svari hæstv. ráðh., að hann hyggst ekki gera slíka rassíu aftur. Ég held að hér séum við komin að því hvar grundvöllur réttarríkisins sé. Svona leitir eins og gerðar voru hinn 22. des. í fyrra og 14. jan. á þessu ári er spurningin um það, hvar á að beita lögreglunni og hvernig á að beita henni. Í mínum huga þarf tvennt að liggja fyrir: Númer eitt skýrar lagareglur um það að um ólögmætt atferli sé að ræða og númer tvö að ekki sé hægt að beita öðrum aðferðum en þeim að nota lögregluna. Hvorugt þessara atriða var fyrir hendi. Það eru ekki til skýrar heimildir í lögum fyrir því að taka myndbönd sem hafa verið flutt hingað til landsins með löglegum hætti, og þá á ég við að bæði hafa verið borgaðir af þessum myndböndum tollar og söluskattur til ríkisins. Í öðru lagi er þarna um að ræða starfsemi sem óátalið hefur verið viðhöfð í fjölda ára og lögreglan, vitandi um þessa starfsemi og vitandi um það hvað þarna fer fram, hefur óáreitt látið viðgangast.
Það er kannski ástæða hér til að minna á það að hinn 18. febr. 1985 var gerð rassía á myndbandaleigum og þar beindist rannsóknin eða eftirlitið aðeins að klám- og ofbeldismyndum. Ég tel það mjög eðlilegt vegna þess að það eru skýrar heimildir í lögum fyrir því að slíkt efni megi taka og slíkt efni er ólöglegt. En um hitt efnið, þetta efni sem er flutt hingað til lands, eru ekki skýrar reglur, hvort löglegt er eða ólöglegt.
Ég vildi gera þessa athugasemd hér og treysti ráðherra til að athuga betur næst þegar gripið verður til svona stórfelldra aðgerða ... (Forseti: Hv. ræðumaður hefur farið óhæfilega fram úr tímanum.) Ég vil þá bara að lokum beina því til ráðherra að hann athugi málið vel og vandlega áður en til svona ráðstafana er gripið, að gera það að vel athuguðu máli.