10.12.1987
Sameinað þing: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1766 í B-deild Alþingistíðinda. (1301)

174. mál, málefni óperusöngvara

Fyrirspyrjandi (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir greið svör varðandi þetta málefni. Ég skal ekki falla í þá freistni að gerast talsmaður aukinna ríkisútgjalda á síðustu dögum fyrir jól, en ég fagna því hversu ráðherrann hefur tekið vinsamlega í þetta málefni og ég vona svo sannarlega að á því megi finnast sú lausn sem allir geti við unað og sem sæmir íslensku menningarríki.