10.12.1987
Neðri deild: 22. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1947 í B-deild Alþingistíðinda. (1439)

136. mál, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Þetta frv. sem kemur til Nd. frá Ed. og ég mæli hér fyrir felur í sér breyting á lögum nr. 95 frá 1980, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda. Það er lagt fyrir hv. Alþingi í framhaldi af því að í tengslum við kjarasamninga, er tókust með félögum Alþýðusambandsins og vinnuveitenda þann 26. febr. 1986, var samið um tvö atriði er snertu starfsemi lífeyrissjóðanna.

Í fyrsta lagi skyldu lífeyrissjóðirnir lána verulegan hluta af sínu ráðstöfunarfé til Húsnæðisstofnunar ríkisins. Í öðru lagi skyldi greiða iðgjald til lífeyrissjóða af öllum launatekjum starfsmanna í stað dagvinnulauna áður. Þessi síðari breyting skyldi verða í áföngum á árunum 1987–1989.

Í samræmi við þessi samningsákvæði breyttu flestir lífeyrissjóðir landsins reglugerðum sínum á síðasta ári og hefur fjmrn. staðfest þær breytingar. Lögin um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda nr. 95 frá 1980 eru sniðin eftir reglugerðum lífeyrissjóða innan Sambands almennra lífeyrissjóða, skammstafað SAL. Stjórn söfnunarsjóðsins, sem m.a. er skipuð samkvæmt tilnefningu SAL, Landssambands lífeyrissjóða og stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, er einhuga um það að eðlilegast sé að þessum lögum verði breytt til samræmis við þær reglur sem nú gilda um iðgjöld til sjóða innan SAL og landssambandsins.

Réttur félaga í söfnunarsjóðnum til lífeyris er tryggður með sama hætti og almennt tíðkast hjá lífeyrissjóðum öðrum en sjóðum opinberra starfsmanna. Það verður að telja eðlilegt að sami háttur gildi um alla sjóði og mælist ég til þess af hv. þingdeild að hún greiði þessu frv. leið og því verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.