12.12.1987
Efri deild: 21. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1955 í B-deild Alþingistíðinda. (1451)

Vinnubrögð í efri deild

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég hafði tekið eftir því að frv. um húsbanka var ekki á dagskránni í dag og ekki var neinn vilji fyrir því, að maður hélt hjá þm. Borgarafl. að það mál yrði tekið til umræðu, en ég hef síður en svo á móti því að umræður geti um það orðið ef hv. 7. þm. Reykn. leggur á það áherslu að við eyðum deginum í það og ræðum húsbankann sérstaklega núna en ekki síðar þegar húsnæðismálin verða tekin fyrir í heild.