12.12.1987
Efri deild: 21. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1956 í B-deild Alþingistíðinda. (1453)
Vinnubrögð í efri deild
Forseti (Karl Steinar Guðnason):
Ég tek það fram í tilefni af orðum hv. 7. þm. Reykn. að það er mætingarskylda í deildinni. Enginn hafði boðað fjarvist nema hv. þm. Eiður Guðnason vegna veikinda. Ef haft hefði verið orð á því við mig að doka við vegna þess að viðkomandi hefði ætlað að taka þátt í umræðum hefði ég tekið tillit til þess mjög ljúflega. Því miður hafa boðleiðir ekki verið í lagi samkvæmt þessu. Ég mun halda áfram fundi strax og dagskrá hefur verið útbýtt.