12.12.1987
Efri deild: 21. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1956 í B-deild Alþingistíðinda. (1454)

Vinnubrögð í efri deild

Júlíus Sólnes:

Hæstv. forseti. Bara að það verði ekki eftir í hugum hv. þm. deildarinnar að hér hafi verið um að sakast við hæstv. forseta deildarinnar. Svo er ekki. Ég tek alla ábyrgð á sjálfan mig að koma ekki í tæka tíð til að geta tekið þátt í umræðum um Háskólann á Akureyri. Ég taldi að ég hefði nægan tíma til að skjótast heim til mín og sækja undirbúna ræðu. Það er við mig einan að sakast að það fór sem fór. Og ég þakka orð hæstv. forseta þar sem hann segir að hann hefði að sjálfsögðu frestað umræðum um málið til þess að ég gæti tekið þátt í þeim. Ég virði það.