14.12.1987
Sameinað þing: 32. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2088 í B-deild Alþingistíðinda. (1497)
1. mál, fjárlög 1988
Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Ég ætla að nota tíma minn hér fyrst og fremst til þess að mæla fyrir brtt. á þskj. 270, sem ég flyt sumpart einn eða ásamt hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni. Hér væri vissulega ástæða til þess að ræða almennt um fjárlagagerðina, en af hálfu Alþb. hefur þegar talað fulltrúi okkar í fjvn., hv. þm. Margrét Frímannsdóttir, og ég get vísað til hennar orða og álits í sambandi við bæði störf fjvn. og alveg sérstaklega þær athugasemdir sem hún hefur gert í sambandi við fjárlagagerðina og tel ekki ástæðu til að fara yfir þær aftur sérstaklega.
Við hljótum þó að taka eftir því að með nokkuð sérstökum hætti er unnið hér að þessum málum í sambandi við einstök svið. Þar á ég alveg sérstaklega við það sem snýr að atvinnuvegum í landinu og rannsóknastarfsemi í landinu þegar það gerist í málefnum heils ráðuneytis að viðkomandi ráðherra eins og hæstv. landbrh. lýsir fyrirvara við fjárlagafrv. sem eðlilegt var og nú við 2. umr. liggja fyrir brtt. upp á hundruð millj. kr. til landbúnaðarins og stofnana honum tengdra. Ég fagna því sannarlega að það hefur orðið nokkur breyting á í sambandi við þann atvinnuveg frá því sem fyrirhugað var af hæstv. fjmrh. þegar frv. var lagt hér fyrir.
Ég vil einnig taka undir þau orð sem fallið hafa hér í sambandi við verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, en það mál eigum við eftir að ræða betur þegar frv. þar að lútandi kemur frá nefnd til 2. umr. í hv. Nd. þingsins. Ég mun ekki fara út í einstök atriði, en við alþýðubandalagsmenn flytjum sérstaklega tillögur sem snúa að athugasemdum okkar varðandi þau efni þar sem hv. þm. Ragnar Arnalds er 1. flm. að sameiginlegum tillögum sem við flytjum alþýðubandalagsmenn og hann mun væntanlega mæla fyrir hér síðar í umræðunni.
Ég vil undirstrika það að þarna er mjög misráðið hvernig í verkefnin er gengið. Fyrst er byrjað á að flytja verkefnin frá ríkinu til sveitarfélaga og þá er fyrst farið að huga að tekjuöfluninni fyrir sveitarfélögin. Ég held að það sé alveg ljóst að hér stefnir í mikið óefni og því full þörf á því að við afgreiðslu fjárlaga verði mál endurskoðuð frá því sem fyrirhugað var af hæstv. ríkisstjórn í þessu efni og sá jöfnunarsjóður eða jöfnunarbanki sem hugmyndin er að setja upp hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga er það vesæll og aumur að ég hef ekki neina trú á því að hann leysi nema lítið brot af þeim vanda sem við mun blasa í sambandi við uppgjör og aðstoð við þau sveitarfélög sem þarna verða fyrir miklu misrétti.
Virðulegur forseti. Ég hlýt að vekja athygli hæstv. forseta og þingheims á því að ríkisstjórnin sér ekki ástæðu til að vera viðstödd þessa umræðu. Hér er að vísu formaður fjvn. sem tekur sér tíma til að hlýða á mál þm. en enginn einasti ráðherra er hér viðstaddur í þingsal, ekki hæstv. fjmrh. hvað þá aðrir ráðherrar. Og ég sé út af fyrir sig ekki ástæðu til þess, virðulegur forseti, að halda áfram máli mínu á meðan svo háttar og leyfi mér þá að gera hlé á máli mínu meðan athugað verður hvort ekki sé unnt að fá a.m.k. hæstv. fjmrh. í þingsal, en helst hefði ég kosið að sjá aðra ráðherra einnig því að við erum hér að fjalla um allt svið sem undir ríkisstjórnina heyrir, væntanleg áhugamál einstakra ráðherra þar á meðal og ég geri hlé á máli mínu.