15.12.1987
Sameinað þing: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2187 í B-deild Alþingistíðinda. (1530)

1. mál, fjárlög 1988

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Þar sem þær röklausu atkvæðaskýringar hv. stjórnarliða koma í ræðustól hver á fætur annarri að í trausti þess að fjvn. skoði málin milli 2. og 3. umr. segi þeir nei, þá ætla ég að segja: Í trausti þess að hv. fjvn. skoði málin vandlega milli 2. og 3. umr. til hækkunar á þessum lið segi ég já.