15.12.1987
Sameinað þing: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2187 í B-deild Alþingistíðinda. (1531)

1. mál, fjárlög 1988

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Við umræður á Alþingi undanfarna daga hafa verið færð fyrir því gild rök að íþróttahreyfingin hafi ekki verið hlunnfarin í fjárframlögum af hálfu Alþingis og með það í huga að eftir að októbermánuður hefur verið gerður upp hjá Íslenskri getspá námu greiðslur til eignaraðila sem hér segir: Íþróttasamband Íslands 95,6 millj., Öryrkjabandalag Íslands 82 millj., UMFÍ 27,3 millj., þá segi ég nei.