15.12.1987
Sameinað þing: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2194 í B-deild Alþingistíðinda. (1557)
1. mál, fjárlög 1988
Guðni Ágústsson:
Hæstv. forseti. Það hefur sjaldan gerst í þingsögunni að minni hl. fjvn. sem hefur haft allan aðgang að og tekið þátt í skiptingu fjármagns til verkefna án ágreinings og þessi sami minni hl. gerði engan ágreining í þingmannahópi Sunnlendinga út af þessu máli þar sem ég og hv. þm. Eggert Haukdal gerðum einmitt athugasemdir við þá liði sem nú er kosið um. Í trausti þess að hærri fjármagnsupphæðir komi til sjúkrahúsa og öldrunarmála segi ég nei við þessa umræðu.