15.12.1987
Sameinað þing: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2198 í B-deild Alþingistíðinda. (1571)
1. mál, fjárlög 1988
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Eins og ég hygg að komið hafi fram í máli mínu áðan er ég gerði grein fyrir atkvæði mínu taldi ég og tel eðli þess máfs sem þar voru greidd atkvæði um nokkuð sérstakt og því óhjákvæmilegt að hafa á því nokkrar skýringar hvers vegna flutt væri brtt. um að liður af þessari stærðargráðu. upp á 380 millj. kr., félli með öllu út af fjárlögum. Ég vildi að það lægi ljóst fyrir að það væri ekki verið að gera tillögur um að fella niður þessa starfsemi. Þó að mér væri að vísu ekkert fjarri skapi að gera það er hér fyrst og fremst verið að bera upp þessa till. til að fá skorið úr grundvallaratriði.
Varðandi þau ummæli sem féllu í mínu máli þegar ég var að skýra málið og gera grein fyrir atkvæði mínu, þá get ég huggað hv. 2. þm. Norðurl. e. með því að þar var ekkert nýtt sem ekki hafði verið bæði sagt áður utan þings og innan. Auk þess er ræðumaður tilbúinn til að endurtaka þessi ummæli hvenær sem er utan þings ef það hjálpar eitthvað sáluheill hv. 2. þm. Norðurl. e. Ég hygg að í þessum orðaskiptum mínum og þess hæstv. fyrrv. utanrrh. sem hér barst í tal hafi fallið nokkuð hvassari orð þegar þetta mál var sem mest á dagskrá fyrir nokkrum árum.