16.12.1987
Neðri deild: 28. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2360 í B-deild Alþingistíðinda. (1732)

195. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Sérstakur skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði var lagður á í fyrsta sinn á árinu 1979. Skatturinn hefur síðan verið lagður á árlega skv. sérstökum lögum sem gilt hafa fyrir eitt ár í senn. Í ár er skatturinn lagður á skv. 1. kafla laga nr. 74 frá 1986, um álagningu og innheimtu ýmissa tímabundinna skatta og gjalda á árinu 1987.

Í endurskoðaðri tekjuáætlun fyrir árið 1986 er áætlað að innheimtar tekjur af honum verði 165 millj. kr. Í frv. til fjárlaga fyrir árið 1988 er gert ráð fyrir að framhald verði á skattlagningu þessari. Af þessum sökum er í frv. þessu lagt til að ákvæði efnislega samhljóða I. kafla laga nr. 74/1986, þar á meðal að því er varðar skatthlutfall, verði lögfest vegna álagningar opinberra gjalda 1988.

Í tekjuáætlun fjárlagafrv. fyrir árið 1988 er gert ráð fyrir að álagning skattsins nemi um 210 millj. kr. en innheimta um 190 millj. að meðtalinni innheimtu af eftirstöðvum fyrri ára.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. fjh.- og viðskn.