16.12.1987
Neðri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2375 í B-deild Alþingistíðinda. (1752)

163. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Reykv. fyrir stuðning við frv. sem hér er til umræðu og hef tekið eftir ábendingum hans um skort á gagnkvæmni í skiptum Íslands og annarra ríkja hvað varðar veitingu á ríkisborgararétti. Ég mun skoða það mál.