18.12.1987
Efri deild: 28. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2478 í B-deild Alþingistíðinda. (1819)
196. mál, söluskattur
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Hæstv. sjútvrh. tók af mér ómakið að segja það, sem ég veit að hv. 7. þm. Reykv. vissi, að afgreiðslan hér og nú snertir að sjálfsögðu ekki niðurgreiðslurnar né þær yfirlýsingar sem hafa verið gefnar í þeim efnum. Þvert á móti mun meiri hl. deildarinnar, a.m.k. þm. Sjálfstfl., fylgja því fast eftir að við yfirlýsingar um niðurgreiðslur verði staðið.
Hitt vakti hins vegar athygli mína að mér virtist hv. þm. vera að gera því skóna að það væri allt í lagi frá hans hálfu að fjmrh. stofnaði til verulegra útgjalda úr ríkissjóði þvert ofan í vilja þingdeildarinnar og þvert ofan í það sem hann túlkaði sem beina afstöðu þingdeildarinnar um að niðurgreiðslurnar væru óheimilar. Þessu vil ég algerlega mótmæla. Útgjöld úr ríkissjóði eru ekki ákveðin með afgreiðslu þingdeildarinnar á frv. um söluskatt. Þvert á móti er það tekjuöflunarfrv. en ekki útgjaldafrv.