18.12.1987
Efri deild: 28. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2481 í B-deild Alþingistíðinda. (1827)

196. mál, söluskattur

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Í samræmi við stefnu Kvennalistans höfum við hv. þm. Danfríður Skarphéðinsdóttir leyft okkur að bera fram brtt. til að koma í veg fyrir að söluskattur verði lagður á matvæli. Þetta er í raun síðasta tilraun við þessa umræðu til að koma í veg fyrir að þessi skattur leggist á lífsnauðsynjar fjölskyldna og heimilanna í landinu. Ég segi því já.