18.12.1987
Efri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2514 í B-deild Alþingistíðinda. (1863)

180. mál, gildistaka staðgreiðslu opinberra gjalda

Frsm. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég vil vegna ummæla hv. 7. þm. Reykv. aðeins upplýsa að bréf er á leiðinni frá fjmrn. varðandi það efnisatriði sem verið var að ræða um en hefur misfarist með einhverjum hætti, er hvorki í mínum persónulega pósti né í þeim pósti sem nefndinni hefur borist.